NETIÐ 2010
Forsíða Um sýninguna Fyrir sýnendur Dagskrá Fréttir Hafa samband

Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði. Fjölmörg fyrirtæki munu kynna sína þjónustu, allt frá vefsíðum og hönnun til upplýsingaveita og viðskipta. Internetið er vaxandi þjónustu, samskipta og viðskiptamiðill þar sem öryggi og traust milli neytenda og þjónustuaðila er mjög mikilvægt.

Silent Company ehf og Nordic eMarketing eru samstarfsaðilar að stórsýningunni Netið2010. Nordic eMarketing hefur undanfarin ár haldið Reykjavík Internet Marketing Conference & Expo, þar sem fyrirlesarar frá nokkrum af áhugaverðustu fyrirtækjum heims koma og kynna markaðssetningu á internetinu. Í ár koma m.a. aðilar frá Bing, Ericsson, CCP, Vintage Tub o.fl.

Silent Company og Nordic eMarketing taka nú höndum saman og standa að einni flottustu Expo sýningu síðari ára. Ákveðið hefur verið að færa sýninguna til 12.-14. mars, sömu helgi og ráðstefna Nordic eMarketing fer fram. Ráðstefnan fer fram í Smárabíó á föstudeginum og Expo sýningin verður í Vetrargarðinum föstudag til sunnudags.

 
 




Skipuleggjendur

Silent Company ehf annast víðtæka þjónustu á sviði viðburða. Silent Company sér um framkvæmd stórsýningarinnar Netið 2010 í samstarfi við fjóra öfluga aðila: Hvíta Húsið, Vodafone, Pressan.is og Míla.

Ef þig vantar frekari upplýsingar um sýninguna vinsamlegast hafðu samband við :

Davíð Sigurðarson 894-0477
Jóhann Sveinbjörnsson 899-0484



   
 
Netið 2010