|
Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12.-14. mars. Á sýningunni gefst fyrirtækjum kostur á að kynna starfsemi sína í tengslum við internetið. Sýningunni er ætlað að fræða almenning um þær nýjungar og möguleika sem netið býður upp á og því mun fyrirtækjum gefast kostur á að kynna sína starfsemi gaumgæfilega. Netnotkun Íslendinga eykst á milli ára og um leið fjölgar þeim sem kaupa sér vörur á internetinu eða nýta sér þjónustu í gegnum internetið.
Við munum leitast við að fyrirtæki hafi ólíkan bakgrunn og starfsemi þannig að sýningin verði fjölbreytt og skemmtileg. Meðal flokka á sýningunni má nefna:
• Heimasíður og hýsingar
• Forritun
• Grafísk hönnun
• Viðskipti
• Afþreying
• Nám
• Upplýsingaveitur
Þetta er frábært tækifæri til að kynna sína þjónustu, auglýsa sig og byggja upp ný viðskiptasambönd.
Þjónusta
Þjónusta fyrir sýnendur verður eins og best verður á kosið. Fagsyningar.is sjá um uppsetningu sýningarsvæðis í Vetrargarðinum.
Básar verða settir upp á þriðjudegi.
Sýnendur geta komið á miðvikudegi fyrir sýningarhelgi og gert sinn bás kláran.
Sýnendum verður séð fyrir internettengingu, rafmagni og lýsingu. Starfsmaður frá Fagsýningum verður til staðar frá og með miðvikudegi og aðstoðar fyrirtæki við að koma sér fyrir. Einnig verða starfsmenn á svæðinu til aðstoðar á meðan sýning stendur yfir.
|