NETIÐ 2010
Forsíða Um sýninguna Fyrir sýnendur Dagskrá Fréttir Hafa samband

 

Yfir 30 fyrirtæki hafa skráð sig til þátttöku
Markmið sýningarinnar hefur náðst, sem var einfaldlega að fá yfir 20 fyrirtæki og hafa þau sem fjölbreyttust.
Nú eru aðeins nokkrir dagar í sýninguna og komin yfir 30 fyrirtæki, og gengur vel að undirbúa sitt svæði. Einnig höfum við heyrt af spennandi
hugmyndum sem sýnendur ætla að kynna, og verður fróðlegt að sjá hvernig gestir bregðast við þessum nýjungum. Fyrirtækið Dohop.com ætlar að gefa
utanlandsferð með Iceland Express, Allra Átta gefur vinninga yfir hálfa milljón og Tónlist.is verða duglegir að gefa fría áskrift á vefnum þeirra,
þetta er bara sýnishorn af því sem koma skal. Bylgjan fer af stað með auglýsingaherferð vikuna fyrir sýningu og verður með beina útsendingu á
sjálfri helginni. Við viljum þakka kærlega fyrir frábæra þátttöku og hlökkum mikið til sýningarinnar. Sjáumst 12-14.mars í Vetrargarðinum
Smáralind.

Starfsfólk Silent Company ehf.
Davíð Sigurðarson 894-0477
Jóhann Sveinbjörnsson 899-0484

Fyrirtækin sem taka þátt í sýningunni eru:


Davíð og Golíat dg.is
Allra Átta
Smartmedia.is
Apmedia.is
Hugsaser.is
Atmos.is
Netvistun.is
Heilsubot.is
Vodafone.is
Snerta.is
Nebon og Rósastef
Scope.is
Nordic eMarketing
NOVA
Tolvunam.is
SAFT
Gogoyoko.com
Tellmetwin
Betri kaup
Pressan.is
Aksjon.is
Leggja.is
Leit.is
Vefþulan
Nethýsing
Svar tækni
DoHop.com
Matarkarfan.is
Meniga.is
Atomstöðin
Tonlist.is
SVEF
Nethysing.is
Kortaþjónustan
ásamt fleirum.








Öflugt samstarf

Silent Company og Nordic eMarketing hafa tekið upp samstarf í kringum stórsýninguna Netið 2010 og Reykjavík Internet Marketing Conference & Expo. Ráðstefna Nordic eMarketing, RIMC, fer fram föstudaginn 12.mars. Að venju koma frábærir fyrirlesarar á ráðstefnuna frá nokkrum af stærstu fyrirtækjum heims. Ráðstefnan fer fram í Smárabíó. Í Vetrargarðinum fer fram stórsýningin Netið 2010. Sýningin verður haldin dagana 12.-14.mars. Helgin mun því verða lögð undir netið og markaðssetningu. Þetta verður því frábær helgi fyrir þá sem notast við netið í sinni starfsemi


Góðar fréttir frá Punktur is

Fjöldi .IS léna hefur nú náð 27.000 lénum og hefur vaxið hratt undanfarin tvö ár. Þannig jukust nýskráningar í september um 77% á milli ára og í nýliðnum október um 45% milli ára. Aukning virkra léna undanfarna 12 mánuði er 34% og aukningin sl. 24 mánuði er 68%.
Lénaskráningar tóku kipp 1. desember 2008 þegar stofngjaldið var fellt niður og kostnaður við nýskráningu .IS-léna lækkaði um 36% í krónum talið. Starfsmenn ISNIC hafa sl. þrjú ár gert margar mikilvægar breytingar á þjónustu og innra notendaviðmóti, sem hafa haft jávæð áhrif á fjölgun léna. Á nýju ári opnar ISNIC nýjan vef með mörgum áhugaverðum nýungum.
Isnic.is

Salan á básum hefst 15.desember
Þann 15.desember hefst salan á básum fyrir sýninguna Netið 2010. Það er Hans Guðmundsson sem sér um söluna og er hægt að hafa samband við hann í síma 846 5985.

TM Software þróar lausn fyrir breska ferðaskrifstofu
Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur þróað lausn í samstarfi við vefhönnunarfyrirtækið VYRE Ltd. fyrir bresku ferðaskrifstofuna Inghams sem er leiðandi í skíða- og fjallaferðum til Evrópu og Norður-Ameríku.
Í tilkynningu segir að TM Software sá um að tengja bókunarkerfi Inghams við vef ferðaskrifstofunnar svo hægt sé að leita að ferðum og fá ávallt nýjustu verð og framboð þegar vafrað er um vefinn. Með tengingu vefjarins við bókunarkerfið er fullur aðskilnaður á milli efnis og bókunarupplýsinga. Þannig er hægt að breyta verði og framboði fyrir vefinn með einföldum hætti.
VYRE annaðist uppsetningu á vefumsjónarkerfinu VYRE Unify fyrir Inghams og fékk TM Software til þess að annast tengingar við bókunarkerfið. Markmið Inghams með nýjum vef er að auka hlut sinn í sölu á ferðum í gegnum netið. Inghams, sem hefur starfað í 75 ár, notar ennfremur lausnina til að halda utan um allt stafrænt efni, varðveislu þess, samþykktarferli og birtingu í hinum ýmsu miðlum.

Netnotkun mest á Íslandi
Heimilum í ríkjum Evrópusambandsins sem eru með aðgang að neti hefur fjölgað úr 60% í 65% á einu ári, frá fyrsta ársfjórðungi 2008 til sama tímabils í ár. 56% heimila eru með nettengingu gegnum breiðband samanborið við 49% í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Hagstofu Evrópu um aðgang að netinu í ríkjum ESB. Þar kemur fram að á Íslandi og í Hollandi séu 90% heimila með aðgang að neti og er það hæsta hlutfallið í ríkjum Evrópu.
Í Búlgaríu eru einungis 30% heimila með aðgang að neti og í Serbíu eru 37% heimila með aðgang að netinu. Í Grikklandi og Rúmeníu er hlutfallið 38%.
Hvað varðar netaðgang í gegnum breiðband er hlutfallið hæst á Íslandi eða 87%. Svíar koma næstir með 80% og Hollendingar 77%.
Netnotkunin er hvergi jafn mikil og á Íslandi en hins vegar virðast Íslendingar heldur halda sig til hlés þegar kemur að innkaupum á netinu.
mbl.is

 


   
 
Netið 2010